Framherjinn Kjartan Henry Finnbogason skoraði eitt marka sænska 1. deildarliðsins Öster þegar liðið lagði Ljungby, 3-0, í æfingaleik í dag.
Kjartan, sem er á mála hjá norska liðinu Sandefjord, er til reynslu hjá Öster þar sem starfskrafta hans er ekki lengur óskað í Noregi.
Í umfjöllun á heimasíðu Östers um leikinn kemur fram að Kjartan hafi átt góða spretti og er þess jafnframt getið að hann hafi náð að skora annað mark sem var dæmt af vegna rangstöðu.
Davíð Þór Viðarsson, sem gekk til liðs við Öster frá Íslandsmeisturum FH síðastliðið haust, tók ekki þátt í leiknum í dag.


