Heimild: Heimasíða Castrol
Fyrirtækið og olíuframleiðandinn Castrol, einn af stuðningsaðilum EM 2012, hefur reiknað út möguleika hverrar þjóðar á að komast í lokakeppnina í prósentutölum og kemur Ísland vægast sagt illa út.
Ísland er nefnilega eitt 13 landsliða sem eiga 0% möguleika á að vinna sér keppnisrétt á EM samkvæmt útreikningum Castrol.
Útreikningarnir fóru fram á svipaðan hátt og við þróun á olíuframleiðslu fyrirtækisins, þar sem stuðst er við hlutlausa greiningu og háþróaða tækni, eins og segir svo spekingslega á heimasíðu Castrol.
Þau landslið sem eru talin nær örugg inn á Evrópumótið eru Holland (98%), Þýskaland (97%), England (96%) og Spánn (96%).
Þetta er vitaskuld til gamans gert hjá forsvarsmönnum Castrol og endurspeglar í engu getu einstakra landsliða og möguleika þeirra á að komast í lokakeppni Evrópumótsins sem mun fara fram í Póllandi og Úkraínu.
Möguleikar hverrar þjóðar á að komast á EM samkvæmt útreikningum Castrol:
A-Riðill: Azerbaijan (0%), Kazakhstan (0%), Belgía (2%), Austurríki (2%), Tyrkland (61%), Þýskaland (97%)
B-Riðill: Andorra (0%), Armenía (0%), Makedónía (6%), Írland (26%), Slóvakía (26%), Rússland (85%)
C-Riðill: Færeyjar (0%), Eistland (0%), Slóvenía (8%), Norður-Írland (3%), Serbía (67 %), Ítalía (81%)
D-Riðill: Lúxemborg (0%), Albanía (1%), Hvíta-Rússland (9%), Bosnía (13%), Rúmenía (51%), Frakkland (78%)
E-Riðill: San Marínó (0%), Moldavía (0%), Ungverjaland (5%), Finnland (4%), Svíþjóð (50%), Holland (98%)
F-Riðill: Malta (0%), Georgía (0%), Lettland (3%), Ísrael (34%), Grikkland (38%), Króatía (75%)
G-Riðill: Svartfjallaland (1%), Wales (4%), Búlgaría (12%), Sviss (36%), England (96%)
H-Riðill: Ísland (0%), Kýpur (0%), Noregur (36%), Danmörk (50%), Portúgal (73%)
I-Riðill: Liechtenstein (0%), Litháen (2%), Skotland (5%), Tékkland (66%), Spánn (96%)


