Heimild: Sky
John Terry var sviptur fyrirliðabandinu hjá enska landsliðinu í síðustu viku eftir að fregnir af framhjáhaldi hans með fyrrum kærustu Wayne Bridge komust í fjölmiðla.
Fabio Capello landsliðsþjálfari Englands segir Terry samt ennþá einn af mikilvægustu leikmönnum landsliðsins.
,,Þetta er bara búið núna," útskýrði Capello. ,,Þetta er búið og það er kominn tími á að halda áfram."
,,John Terry er enn mikilvægur leikmaður fyrir England. Hann er ennþá einn af mikilvægustu leikmönnum Englands."



