Heimild: Vefur Liverpool
Conor Coady fyrirliði u-18 liðs Liverpool hrósaði Kristjáni Gauta Emilssyni nýjum leikmanni liðsins í hástert þegar hann var spurður út í sigur þeirra gegn Manchester United sem fór fram nú á dögunum.
Kristján Gauti skoraði sigurmark leiksins og sagði Coady að hann hefði virkað mjög vel á sig á æfingum síðan hann kom.
„Þetta var frábær leikur og það var gaman að vinna. Við vorum allir vel stemmdir fyrir hann og vissum að við þyrftum að vinna vegna stöðu okkar í deildinni. Þetta var skemmtilegur leikur,“ sagði Coady.
„Kristján Gauti er mikið efni. Hann hefur litið mjög vel út á æfingum og hann er klárlega góður leikmaður. Hann gerði gæfumuninn þegar hann kom inn á gegn United og svo skoraði hann náttúrulega sigurmarkið, sem var frábært fyrir hann.“





