Fram endar í fyrsta sæti í B-riðli Reykjavíkurmóts karla en þetta varð ljóst í hádeginu í dag.
Fram og Fylkir enduðu hnífjöfn í tveimur efstu sætunum í riðlinum.
Bæði lið eru með sjö stig og markatöluna 5-3 og það sem meira er þá gerðu þau 3-3 jafntefli í innbyrðis viðureign sinni.
Því þurfti að draga um það hvort liðið myndi enda í efsta sæti og það urðu Framarar.
Fram mætir því KR eða Víkingi í undanúrslitunum en Fylkir getur mætt KR, Víkingi eða Þrótti.



