Linus Högberg, 19 ára gamall Svíi, er þessa dagana til reynslu hjá Selfyssingum.
Linus er á mála hjá Örgryte en hann getur leikið bæði í fremstu víglínu og á miðjunni.
Hann hefur verið í afrekshóp Örgryte síðan hann var 14 ára og verið valinn besti leikmaðurinn í sínum afrekshópi.
Linus kom til Íslands í síðustu viku og verður hjá Selfyssingum fram á miðvikudag.
Í gær lék hann með Selfyssingum í 1-0 tapi gegn Breiðablik í æfingaleik og á morgun mun hann leika með öðrum flokki félagsins í æfingaleik gegn Hamar.

