Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 21. febrúar 2010 14:48
Hafliði Breiðfjörð
Lengjubikarinn: Fram vann Selfoss í fyrsta leik dagsins
Haldór Hermann skoraði glæsilegt mark fyrir Fram.
Haldór Hermann skoraði glæsilegt mark fyrir Fram.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Alexander skoraði fyrir fram stuttu eftir að hafa komið inná sem varamaður.
Alexander skoraði fyrir fram stuttu eftir að hafa komið inná sem varamaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Daði skoraði mark Selfoss í dag.
Jón Daði skoraði mark Selfoss í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Fram 3-1 Selfoss
0-1 Jón Daði Böðvarsson (’14)
1-1 Tómas Leifsson (’41)
2-1 Halldór Hermann Jónsson (‘45+)
3-1 Alexander Veigar Þórarinsson (’70)
Rautt spjald: Orri Gunnarsson , Fram ('87)

Fram lagði Selfoss í fyrsta leik dagsins í Lengjubikarnum en tíu tíma maraþon er hafið í Egilshöll þar sem fimm leikir fara fram í dag.

Selfyssingar byrjuðu leikinn betur og komust yfir eftir um stundarfjórðun þegar Jón Daði Böðvarsson skoraði með föstu lágu skoti fyrir utan vítateiginn, glæsilegt mark.

Framarar unnu sig svo smám saman inn í leikinn og náðu að jafna metin á 41. mínútu. Hjálmar Þórarinsson fékk þá sendingu innfyrir vörn Selfyssinga. Ívar Björnsson virtist standa í rangstöðu en fór úr henni og Hjálmar fékk boltann, sendi fyrir markið þar sem Tómas Leifsson kom og skallaði inn af stuttu færi.

Í uppbótartíma fyrri hálfleiks komust Framarar svo yfir. Það mark var af dýrari gerðinni, Halldór Hermann Jónsson sem stóð utarlega í teignum fékk boltann og skorðaði með viðstöðulausu skoti á lofti beint upp í samskeytin. Strax í kjölfarið af miðjunni var svo flautað til hálfleiks.

Bæði lið skiptust á að sækja og sköpuðu sér fín færi en tókst ekki að nýta sér þau framan af síðari hálfleiknum.

Ingi Rafn Ingibergsson var þarna að spila sinn fyrsta mótsleik fyrir Selfoss eftir að hafa komið frá ÍBV í vetur. Ingi Rafn er ekki hár í loftinu en í tvígang var hann kominn í hæstu hæðir með því að klifra á bak varnarmanna Fram. Í fyrra skiptið kastaðist hann út af vellinum og meiddi sig er hann skall í hörðu gólfinu en í hitt skiptið virtist hann kominn í kúrekaleik og hékk á baki Kristjáns Haukssonar og hélt um hálsinn án þess þó að vera áminntur fyrir þessi ævintýri.

Alexander Veigar Þórarinsson kom inná sem varamaður hjá Fram eftir rúmlega klukkutíma leik og var búinn að vera inni á vellinum í sex mínútur þegar hann skoraði þriðja mark Framara með föstu skoti í vítateignum.

Orri Gunnarsson var aðeins búinn að vera inni á vellinum í tvær mínútur þegar hann fékk að líta rauða spjaldið fyrir brot á 87. mínútu.

Meira gerðist ekki í leiknum og lokastaðan1-3 fyrir Framara sem byrja Lengjubikarinn vel þetta árið. Selfyssingar eiga meira inni en í þeirra lið vantaði helstu stjörnurnar, Sævar Þór Gíslason og þjálfarann Guðmund Benediktsson sem stýrði liðinu af hliðarlínunni.

Fram: Hannes Þór Halldórsson, Daði Guðmundsson (Jón Orri Ólafsson ’85), Kristján Hauksson, Jón Guðni Fjóluson, Sam Tillen, Halldór Hermann Jónsson, Jón Gunnar Eysteinsson, Almarr Ormarsson, Tómas Leifsson (Alexander Veigar Þórarinsson ’64), Hjálmar Þórarinsson (Orri Gunnarsson ’85), Ívar Björnsson (Hlynur Atli Magnússon ’45).

Selfoss: Jóhann Ólafur Sigurðsson, Sigurður Eyþberg Guðlaugsson, Stefán Ragnar Guðlaugsson, Agnar Bragi Magnússon (Jón Steindór Sveinsson ’45), Andri Freyr Björnsson, Gunnar Rafn Borgþórsson, Jón Guðbrandsson (Árni Páll Hafþórsson ’45), Ingi Rafn Ingibergsson (Ingvi Rafn Óskarsson ’85), Guðmundur Þórarinsson, Arelíus Marteinsson (Ingþór Jóhann Guðmundsson ’60), Jón Daði Böðvarsson

Gul spjöld: Arelíus Marteinsson, Selfoss (’33), Kristján Hauksson, Fram (’67)
Rautt spjald: Orri Gunnarsson, Fram ('87+)
Slapp
banner
banner