FH 2-0 Víkingur
1-0 Gunnar Már Guðmundsson (‘3)
2-0 Ólafur Páll Snorrason (’66)
FH vann sinn annan sigur í Lengjubikarnum í kvöld er liðið lagði Víking af velli með tveimur mörkum gegn engu.
1-0 Gunnar Már Guðmundsson (‘3)
2-0 Ólafur Páll Snorrason (’66)
FH vann sinn annan sigur í Lengjubikarnum í kvöld er liðið lagði Víking af velli með tveimur mörkum gegn engu.
Víkingar höfðu ekki tapað leik á árinu fram að þessu en gert eitt jafntefli en það var ljóst frá fyrstu mínútu í dag að FH-ingar voru sterkara liðið á vellinum og þeir komust yfir strax á þriðju mínútu.
Bakvörðurinn Viktor Örn Guðmundsson kom þá upp vinstri kantinn og sendi góðan bolta fyrir markið. Magnús Þormar markvörður Víkinga kýldi boltann út og beint fyrir fætur Gunnars Más Guðmundssonar sem skoraði með föstu skoti frá enda vítateigsins.
FH-ingar sköpuðu sér fleiri færi í leiknum og tvívegis björguðu Víkingar frá línu. Helgi Sigurðsson hefði mátt gera betur þegar hann skaut framhjá úr góðu færi í síðari hálfleik.
Ólafur Páll Snorrason bætti svo við öðru marki fyrir FH-inga á 66. mínútu. Hjalti Már Hauksson vinstri bakvörður Víkings var að fá boltann og ætlaði að keyra upp í sókn en missti af boltanum. Það nýtti Ólafur Páll sér og skaut föstu skoti fyrir utan vítateiginn og skoraði annað mark FH.
FH: Gunnleifur Gunnleifsson, Guðmundur Sævarsson (Helgi Valur Pálsson ’73), Pétur Viðarsson, Tommy Nielsen (Sverrir Garðarsson ’67), Viktor Örn Guðmundsson, Björn Daníel Sverrisson (Eiríkur Viljar H. Kúld ’46), Gunnar Már Guðmundsson (Örn Rúnar Magnússon ’83), Matthías Vilhjálmsson, Ólafur Páll Snorrason, Atli Viðar Björnsson, Atli Guðnason (Brynjar Benediktsson ’77).
Víkingur: Magnús Þormar, Tómas Guðmundsson, Chris Vorenkamp (Elvar Freyr Arnþórsson ’67), Milos Glogovac, Hjalti Már Hauksson (Kjartan Dige Baldursson ’79), Kristinn Jóhannes Magnússon (Milos Milojevic ’83), Halldór Smári Sigurðsson (Sverrir Garðarsson '90), Þorvaldur Sveinn Sveinsson, Walter Hjaltested, Helgi Sigurðsson, Sigurður Egill Lárusson.
Gul spjöld: Halldór Smári Sigurðsson, Víkingur ('89)
Rauð spjöld: (Engin)




