fim 25.feb 2010 22:51 Hafliði Breiðfjörð,
Lengjubikarinn: Magnað mark Almarrs tryggði Fram sigur
Almarr sem er hér vinstra megin á myndinni tryggði Fram sigurinn með frábæru marki.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Fram 2-1 Leiknir:
1-0 Sam Tillen (’40, víti)
1-1 Einar Örn Einarsson (’59)
2-1 Almarr Ormarsson (’62)

Fram vann Leikni 2-1 í Lengjubikar karla nú í kvöld en leiknum var að ljúka í Egilshöll.

Framarar byrjuðu með látum og eftir aðeins átta sekúndur var Hjálmar Þórarinsson kominn í dauðafæri en skaut í stöng.

Framarar náðu svo forystunni á 39. mínútu en markið skoraði Sam Tillen úr vítaspyrnu. Almarr Ormarsson var þá kominn einn gegn Eyjólfi Tómassyni markverði Leiknis sem braut á honum og Hákon Þorsteinsson dæmdi vítaspyrnu og gaf Eyjólfi gult spjald.

Tillen fór svo á punktinn og skoraði með innanfótarskoti en Eyjólfur fór í vitlaust horn. Staðan 1-0 fyrir Fram í hálfleik.

Einar Örn Einarsson jafnaði metin fyrir Leikni eftir klukkutíma leik. Kári Einarsson sendi þá góðan bolta inn í teiginn á Einar Örn sem klippti hann í markið.

Þremur mínútum síðar skoraði Almarr Ormarsson svo sigurmark Fram. Hann var þá með boltann utarlega í vítateignum og sneri sér við á punktinum og hamraði boltann upp í samskeytin fjær. Magnað mark.

Lokastaðan 2-1 fyrir Framara sem hafa unnið báða leiki sína í Reykjavíkurmótinu til þessa en Leiknir hefur tapað báðum sínum.

Fram: Ögmundur Kristinsson, Daði Guðmundsson (Jón Orri Ólafsson ’67), Kristján Hauksson, Jón Guðni Fjóluson, Sam Tillen, Jón Gunnar Eysteinsson, Halldór Hermann Jónsson, Almarr Ormarsson, Hlynur Atli Magnússon, Hjálmar Þórarinsson (Alexander Veigar Þórarinsson ’60), Tómas Leifsson (Kristinn Ingi Halldórsson ’85).

Leiknir: Eyjólfur Tómasson, Kári Einarsson, Gunnar Einarsson (Óttar Bjarni Guðmundsson, ’67), Halldór Kristinn Halldórsson, Gestur Ingi Harðarson, Hilmar Árni Halldórsson, Brynjar Hlöðversson (Birkir Björnsson ’85), Kjartan Andri Baldvinsson, Kristján Páll Jónsson, Einar Örn Einarsson (Ólafur Hrannar Kristjánssonn ’69), Aron Fuego Daníelsson

Gult spjald: Eyjólfur Tómasson, Leiknir (’39), Brynjar Hlöðversson, Leiknir (’43), Almarr Ormarsson, Fram ('90+)

Nýjustu fréttirnar