Líklegt að Valur leiti að vinstri bakverði erlendis
Valsmenn sýndu Guðmundi Péturssyni framherja KR áhuga á dögunum en nú er ljóst að ekkert verður af því að hann komi til félagsins.
,,Við höfum verið að skoða þetta undanfarnar vikur en við ákváðum að gera ekkert í þessu þannig að hann verður ekki í Val. Það reyndist ekki áhugi hjá báðum aðilum þannig að þetta dæmi gekk ekki upp," sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari Vals við Fótbolta.net í dag.
Guðmundur lék með Breiðablik á láni síðari hlutann á síðasta tímabili og samkvæmt heimildum Fótbolta.net er möguleiki á að þessi sterki framherji fari aftur til Blika. Einnig hefur heyrst orðrómur um að Fram hafi sýnt honum áhuga.
Valsmenn eru í leit að framherja en Gunnlaugur vonast til að félagið nái að semja við Marel Baldvinsson.
Marel lék með Val í fyrra en lagði skóna á hilluna eftir tímabilið. Hann hefur hins vegar æft með Val að undanförnu og Gunnlaugur vonar að hann leiki með liðinu í sumar.
,,Við eigum í viðræðum við Marel og ég er að vona að það gangi upp. Hann er búinn að æfa með okkur síðan í haust en fór í frí og er nýkominn heim til baka. Viðræður hafa byrjað við hann aftur núna, hann hefur ávallt verið okkar fyrsti kostur."
,,Hann gaf það út í haust að ætlaði að hætta en hann æfði með okkur áfram og mér heyrist annað hljóð vera komið í strokkinn á honum þannig að ég vonast til að þetta gangi upp."
Valsmenn eru ekki bara að leita að framherja því að félagið er einnig á höttunum á eftir vinstri bakverði til að fylla skarðið sem Bjarni Ólafur Eiríksson skyldi eftir sig þegar að hann fór til Stabæk í síðasta mánuði.
,,Við erum að leita að arftaka Bjarna Ólafs og ég held að við leitum erlendis að honum," sagði Gunnlaugur en Valur hefur einnig verið að skoða Steinarr Guðmundsson sem hefur leikið með Leikni undanfarin ár.
,,Steinarr hefur verið að æfa með okkur. Hann mun væntanlega koma eitthvað við sögu um helgina á móti Völsungi. Síðan erum við að skoða málin."



