Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 07. mars 2010 10:00
Magnús Már Einarsson
Pedersen nýr leikmaður Vals í viðtali – Mætti Ronaldo í hitteðfyrra
Danski varnarmaðurinn Martin Pedersen gekk í gær til liðs við Val á lánssamningi frá Vejle. Pedersen hefur leikið lengi í úrvalsdeildinni í Danmörku en hann mun leika í Pepsi-deildinni í sumar. Casper Jacobsen, fyrrum markvörður Breiðabliks, er á mála hjá Vejle og hann sagði Pedersen að stökkva á tækifærið að fara til Íslands.

,,Staðan mín hjá Vejle var ekki góð og mér fannst ég þurfa að fá nýja áskorun. Ég talaði við aðra danska leikmenn sem hafa leikið á Íslandi og þeir sögðu góða hluti um Ísland og Reykjavík. Ég talaði síðan við menn á Íslandi og þeir sögðu mér frá Val, þannig byrjaði þetta,” sagði Pedersen við Fótbolta.net í gærkvöldi.

,,Það kom mér skemmtilega á óvart hvernig félagið er. Félagið hefur mikinn metnað og það er fagmannlega staðið að öllu þannig að ég hlakka til að spila með þeim. Ástæðan fyrir því að ég vill spila með Val er að ég vil spila með toppliði á Íslandi.”

Pedersen er fjölhæfur leikmaður en hann mun líklega fylla skarð Bjarna Ólafs Eiríkssonar í stöðu vinstri bakvarðar hjá Val.

,,Ég get spilað sem vinstri bakvörður, vinstri kantmaður, miðvörður og miðjumaður. Ég hef samt oft spilað sem vinstri bakvörður.”

Pedersen er enginn aukvissi en fyrir tæpum tveimur árum lék hann sex leiki með AB Álaborg í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

,,Það var auðvitað mjög mikil reynsla. Við vorum að mæta bestu liðunum og bestu leikmönnunum. Þetta var ótrúleg lífsreynsla.”

Í Meistaradeildinni mætti hann meðal annars Cristiano Ronaldo sem hefur verið einn besti knattspyrnumaður heims undanfarin ár.

,,Hann spilaði á móti mér í fyrri leiknum í Álaborg og það var gaman að mæta honum. Það var líka erfitt enda er hann topp leikmaður,” sagði Pedersen.
Slapp
banner
banner