Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 07. mars 2010 09:00
Hafliði Breiðfjörð
Sjúkraþjálfarahornið: Beinhimnubólga
Mynd: Aðsend
Trausti Már Valgeirsson sjúkraþjálfari svarar á mánudagsmorgnum fyrirspurnum lesenda um algeng meiðsli í fótboltanum og útskýrir málið hér á Fótbolta.net. Trausti svarar í dag nýrri fyrirspurn.

Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].

TRAUSTI MÁR VALGEIRSSON
Trausti Már útskrifaðist úr Læknadeild Háskóla Íslands með B.sc. gráðu í sjúkraþjálfun árið 2008. Hann vinnur í dag sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfuninni Ártúnshöfða og hjá Hreyfingu heilsulind. Hann hefur unnið mikð með íþróttafólki úr ýmsum greinum eins og til dæmis fótbolta, mótorcrossi, taekwondo og fleira
Beinhimnubólga

Spurningar:

Sæll.
Ég er með beinhimnubólgu og það er að trufla mínar æfingar í fótbolta soldið mikið, þetta er aðeins að skána en ég finn ennþá þvílíkan sársauka þegar ég ýti á eða fæ högg á legginn. Fyrst, þá var þetta það slæmt að ég gat varla stigið í lappir þegar ég byrjaði að hlaupa, en hvað get ég gert til þess að minnka þetta eða losna við þetta alveg. ég get alveg hlaupið á fullu núna en hef bara áhyggjur ef ég fæ spark eða verð tæklaður illa og það versnar.

Sæll vertu.
Ég var að lesa um þig á fótbolti.net og ég er búinn að vera í vandræðum með beinhimnubólgu í mörg ár meira eða minna og búinn að leita til lækna um þetta en það virðist enginn vita rosalega mikið um þetta. Það virðist ekki skipta neinu máli hvað ég hvíli mig mikið þetta kemur alltaf aftur. Eftir smá tíma virðist kálfin á mér strekkjast ef það er rétta orðið og verða eins og köggull og fylgir því líka mikill sársauki sem ég var að vona sé "eðlilegt" með beinhimnubólgu.

Svar:

Það sem best er að gera til þess að minnka/losna við beinhimnubólguna er að kæla bólgurnar á leggnum strax með klaka eftir æfingar og hlaup. Vera alltaf í háum sokkum fyrir utan æfingar til þess

að halda svæðinu alltaf hlýju, sérstaklega þegar það er svona kalt úti eins og hefur verið síðustu daga, það stuðlar að eðlilegu blóðflæði um vöðvana í leggnum. Síðan er mjög gott að nudda vel meðfram sköflungnum með olíu og styrkja vöðvana á framan verðum leggnum t.d. með því að ganga fram og til baka á hælunum eða stappa með tánum í gólfið.

Ef vöðvahimnan í kringum kálfann eða vöðvana framan á leggnum er of stíf getur það verið að valda verkjum líka þegar vöðvinn þenst út, þá þarf að losa um hana með vefjalosun eða í sumum tilvikum með skurðaðgerð.

kv.Trausti Már, Fótbolti.net
Slapp
banner