Heimild: Sporting Life
Frederic Piquionne segist vilja vera áfram á Englandi á næsta tímabili eftir að lánssamningur hans hjá Portsmouth rennur út.
Piquionne kom til Portsmouth frá Lyon á láni síðastliðið sumar en þessi 31 árs gamli leikmaður hefur skorað tíu mörk á tímabilinu.
Um helgina skoraði hann bæði mörk Portsmouth í 2-0 sigri á Birmingham í 8-liða úrslitum enska bikarsins.
,,Ég er 31 árs og ég hef aldrei upplifað eins mikla stemningu og í þessum leik og eftir leikinn," sagði Piquionne.
,,Við höfum tapað mörgum leikjum á þessu tímabili og verið í miklum vandræðum en samt eru stuðningsmennirnir ennþá að hvetja okkur. Ég vona að þeir elski mig því að síðustu ár í Frakklandi hafa ekki verið góð fyrir mig."
,,Ég hef aldrei unnið titil á ferlinum en kannski getur það breyst. Hvað sem gerist þá vil ég vera áfram á Englandi og ég er að gera allt sem ég get til að finna félag hér."


