Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 08. mars 2010 13:05
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sport 
Andrey Arshavin: Sem betur fer skoraði Bendtner ekki
Andrey Arshavin, miðjumaður Arsenal, hefur sagt í gríni að það hafi verið gott að Nicklas Bendtner skoraði ekki í 3-1 sigrinum gegn Burnley um helgina.

Bendtner misnotaði fullt af dauðafærum í leiknum en Arshavin vonar að Daninn hafi verið að spara mörkin fyrir leikinn gegn Porto í Meistaradeildinni á morgun.

,,Því miður, eða kannski sem betur fer skoraði hann ekki í dag," sagði Arshavin á heimasíðu sinni eftir leikinn í fyrrdag.

,,Af hverju sem betur fer? Ég vona að hann hafi verið að spara mörkin fyrir leikinn gegn Porto."

Arsenal tapaði fyrri leiknum gegn Porto 2-1 og liðið þarf því að skora á morgun til að eiga möguleika á að komast áfram í 8-liða úrslitin.
Slapp
banner