Heimild: Sporting Life
Steed Malbranque verður að nýju í leikmannahópi Sunderland þegar að liðið mætir Bolton í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld.
Þessi þrítugi Frakki var ekki í leikmannahópi Sunderland í markalausa jafnteflinu gegn Fulham fyrir rúmri viku en Steve Bruce stjóri liðsins hefur staðfest að Malbranque var ekki í hópnum vegna agabrots.
,,Hvað sem gerðist þá veit Steed það, honum hefur verið refsað og hann hefur tekið refsingu sína út," sagði Bruce.
,,Eftir því sem ég best veit þá er þetta mál búið. Þessu verður haldið innanbúðar eins og öllu sem gerist hjá þessu félagi."
,,Því miður virðist þetta alltaf leka út í fjölmiðla en það er búið að eiga við þetta mál. Hann er í hópnum (fyrir morgundaginn) og mun koma við sögu."



