Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 08. mars 2010 15:01
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Pato í hópnum hjá AC Milan gegn Manchester United
Alexandre Pato, framherji AC Milan, verður í 22-manna leikmannahópi liðsins sem fer til Englands fyrir leikinn gegn Manchester United í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöld.

Þessi brasilíski leikmaður meiddist á dögunum og missti af leik liðsins gegn Roma um helgina.

Pato mun ferðast til Englands með AC Milan og síðan kemur í ljós hvort að hann spilar á miðvikudag.

AC Milan er 3-2 undir eftir fyrri leikinn gegn United og það yrði áfall fyrir liðið ef að Pato yrði ekki með á miðvikudag en hann hefur skorað tólf mörk í Serie A í vetur.
Slapp
banner
banner
banner