Heimild: Off The Post
David Moyes, stjóri Everton, var í skýjunum eftir 5-1 sigur liðsins á Hull í ensku úrvalsdeildinni.
Moyes var svo ánægður að hann týndi tölunni á mörkum Everton og hélt í viðtölum eftir leik að liðið hefði skorað sex mörk.
,,Við lékum mjög góðan fótbolta og að skora sex mörk var frábært. Voru þetta fimm eða sex mörk?" sagði Moyes eftir leikinn.
,,Einn af útvarpsmönnunum sagði 5-1 í spurningu sem að hann spurði mig og ég var að íhuga að leiðrétta hann. Voru þetta fimm mörk? Ó, ég er glaður að ég sagði ekkert við hann þá."





