Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. mars 2010 07:25
Magnús Már Einarsson
Hjörvar Hafliðason spáir í Meistaradeildina
Keppni í Meistaradeild Evrópu heldur áfram í kvöld eftir viku hlé en þá fara fram tveir leikir í 16-liða úrslitunum. Arsenal mætir Porto en síðarnefnda liðið er með 2-1 forskot eftir fyrri leikinn. Fiorentina tekur síðan á móti FC Bayern en Þjóðverjarnir eru með 2-1 forskot eftir fyrri leikinn þar.

Guðmundur Benediktsson og Hjörvar Hafliðason eru sérfræðingar Fótbolta.net í Meistaradeildinni og hér að neðan má sjá spá Hjörvars fyrir leikina í kvöld.

Arsenal 2 - 0 Porto
Enginn Gallas, enginn Fabregas og það eru mikil meiðsli hjá Arsenal mönnum. Porto eru ekki eins góðir og undanfarin ár og þeir eru með allt niður um sig heima fyrir þar sem þeir eru ellefu stigum á eftir Benfica. Þetta fer 2-0 fyrir Arsenal og það er aðallega af því að þetta er slakasta Porto liðið í mörg ár. Nicklas Bendtner og Thomas Vermaelen skora mörkin.

Fiorentina 1 - 1 FC Bayern
Bayern hikstaði heiftarlega heima um helgina en þeir fara áfram í Meistaradeildinni þó að það væri gott fyrir hin liðin í Meistaradeildinni að toppliðið í Þýskalandi myndi detta út.

Ég spái jafntefli 1-1. Franck Ribery gerir mark Bayern og Svartfellingurinn í lið Fiorentina, Stefan Jovetic, skorar mark þeirra. Því mun þetta kolólöglega sigurmark í fyrri leiknum fleyta Bayern áfram og pappakassinn Tom Henning Ovrebo mun enn eina ferðina ráða úrslitum.
Slapp
banner