Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 08. mars 2010 16:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Lampard hrósar John Terry fyrir að svara söngvum með marki
Frank Lampard, miðjumaður Chelsea, segir að söngvar frá stuðningsmönnum annarra liða geri John Terry einungis sterkari.

Terry hefur fengið að heyra það frá stuðningsmönnum annarra liða eftir að fram kom í fjölmiðlum að hann hélt framhjá með barnsmóður Wayne Bridge.

Stuðningsmenn Stoke létu Terry heyra það í gær en varnarmaðurinn sterki svaraði því með því að skora og leggja upp mark fyrir Lampard í 2-0 sigri Chelsea.

,,Stundum fer þetta yfir strikið. Sterkir leikmenn bregðast jákvætt við og það er það sem John gerði," sagði Lampard.

,,Svona hlutir gerast en við höldum áfram. Það er í raun gott að svara þessu svona."
Slapp
banner
banner
banner