Brian Kerr, landsliðsþjálfari Færeyja, hefur tilkynnt leikmannahópinn sem mætir Íslendingum í vináttuleik í Kórnum þann 21.mars næstkomandi.
Nokkrir leikmenn í hópnum hafa leikið áður á Íslandi en Símun Samuelsen fyrrum leikmaður Keflavíkur er þar á meðal.
Fróði Benjaminsen fyrrum leikmaður Fram er í hópnum sem og Rógvi Jacobsen sem lék með KR.
Gunnar Nielsen, markvörður, og Jóann Símun Edmundsson, framherji, eru báðir á hópnum en þessir leikmenn eru á mála hjá Manchester City og Newcastle á Englnadi.
Landsliðshópur Færeyja:
Meinhardt Joensen (B36)
Jákup á Borg (B36)
Christian R. Mouritsen (B36)
Fróði Benjaminsen (HB)
Símun Samuelsen (HB)
Vagnur Mohr Mortensen (HB)
Jóhan Troest Davidsen (NSÍ)
Einar Hansen (NSÍ
Jan Ingi Petersen (NSÍ)
Rógvi Jacobsen (ÍF)
Høgni Zachariasen (ÍF)
Atli Gregersen (Víkingur)
Súni Olsen (Víkingur)
Egil á Bø (EB/ST)
Bogi Løkin (Frem)
Jónas Tór Næs (Frem)
Andreas Lava Olsen (Frem)
Atli Danielsen (Roskilde)
Jóan Símun Edmundsson (Newcastle)
Gunnar Nielsen (Manchester City)


