Tveir leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Hermann Hreiðarsson og félagar í Portsmouth taka á móti Birmingham.
Þessi lið mættust í enska bikarnum um helgina þar sem Portsmouth hafði betur.
Þá er fallslagur á Leikvangi ljósins þegar Sunderland og Bolton eigast við en gengi Sunderland undanfarnar vikur hefur verið hræðilegt.
Leikir kvöldsin.
19:45 Portsmouth - Birmingham
19:45 Sunderland - Bolton


