Heimild: Sky
Cristiano Ronaldo leikmaður Real Madrid er vongóður um að liðið komist áfram í Meistaradeild Evrópu.
Liðið mætir Lyon í seinni leik liðanna í 16 liða úrslitum á miðvikudag en lðið tapaði fyrri leiknum á útivelli 1-0.
,,Liðið er í frábæru formi, við erum á heimavelli og getum gert betur en í Lyon. Ég er viss um að við munum svara þesu og að við förum áfram í næstu umferð," sagði Ronaldo.
,,Við verðum að vera með hugarfar sigurvegarans og leitast eftir því að skora. Við skoruðum ekki í fyrri leiknum en ég er viss um að það verður öðruvisi á miðvikudaginn."




