Framherjinn Guðjón Baldvinsson er að ganga í raðir KR að nýju frá GAIS í Svíþjóð en þetta staðfesti Rúnar Kristinsson yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu við Fótbolta.net í kvöld.
Rúnar sagði að félagið hafi gengið frá málum við Guðjón nú seinni partinn í dag og félagið bíði nú eftir að GAIS skrifi undir samninginn fyrir sitt leiti en Guðjón kemur á láni út þessa leiktíð.
Guðjón Baldvinsson sem er 23 ára gamall lék með KR sumarið 2008 og átti þá fast sæti í byrjunarliði.
Þá lék hann 21 leik í deild auk fimm bikarleikja og skoraði samtals níu mörk, öll í deildinni. Að því tímabili loknu var hann seldur til GAIS þar sem hann hefur ekki fengið mörg tækifæri.
Hann er uppalinn hjá Stjörnunni í Garðabæ þar sem hann hóf meistaraflokksferil sinn árið 2003. Þar skoraði hann 45 mörk í 72 leikjum í deild og bikar.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem kemur til KR í vetur. Áður hafði Viktor Bjarki Arnarsson komið frá Lilleström, Kjartan Henry Finnbogason frá Sandefjord og markvörðurinn Þórður Ingason frá Fjölni.
Rúnar sagði að KR sé enn að leita að öðrum markverði til að veita Þórði samkeppni en þegar er ljóst að japanski markvörðurin Akihiro Hayash kemur ekki frá Plymouth. Hann sagði félagið vinna í markmannsmálunum í rólegheitum.




