Heimild: BBC
Mikel Arteta leikmaður Everton segist vera himinlifandi með það að spila fótbolta að nýju eftir erfið hnémeiðsl sem hafa haldið honum á hliðarlínunni í langan tíma.
,,Við spiluðum flottan fótbolta gegn Hull og það var gaman að skora að nýju. Við vildum koma til baka eftir tapið gegn Tottenham og þess vegna var frábært að skora fimm mörk," sagði Arteta en Everton sigraði Hull 5-1 í fyrradag þar sem að hann skoraði tvívegis.
Arteta var einnig mjög ánægður með John Heitinga sem að lék með honum á miðjunni.
,,Ég hafði meiri tíma og pláss til að fara fram á völlinn því að Heitinga lék fyrir aftan mig."
,,Stjórinn vildi að ég spilaði fyrir aftan framherjana og reyndi að búa til færi fyrir þá. Það tókst mjög vel og allt liðið lék frábærlega í dag."
Það er ljóst að endurkoma Arteta í lið Everton er gífurlegur liðsstyrkur í baráttunni um Evrópusæti.




