Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. mars 2010 06:00
Sigurður Reynir Karlsson
Heimild: Daily Mirror 
Torres æfir aukalega til að halda sér meiðslalausum
Fernando Torres framherji Liverpool er farinn að æfa aukalega til þess að halda sér meiðslafríum. Torres hefur æft einn í allt að fimm klukkutíma á dag. Torres hefur verið frá í meira en mánuð vegna meiðsla í nára.

,,Ég þarf að æfa sjálfur í marga tíma á dag til að halda fætinum sterkum," sagði Torres.

,,Þetta er mjög erfitt en þetta er þess virði þegar ég spila. Ein af ástæðunum fyrir aukaæfingunum er sú að Liverpool þurfa á öllum sínum mönnum að halda."

,,Það er alltaf erfitt að horfa á leiki úr stúkunni. Ég vil vera að hjálpa til niðri á vellinum en ekki upp í stúku að horfa á."

Það verður mikið að gera hjá Torres næstu mánuði því hann er lykilmaður í Liverpool sem eru í harðri baráttu um sæti í meistaradeildinni á næsta tímabili. Í sumar tekur hann svo þátt á HM með liði Spánverja.
Slapp
banner
banner