Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 08. mars 2010 22:01
Magnús Már Einarsson
England: Rodallega tryggði Wigan sigur á Liverpool
Wigan Athletic 1 - 0 Liverpool
1-0 Hugo Rodallega ('35)

Möguleikar Liverpool á að ná sæti í Meistaradeildinni minnkuðu í kvöld þegar að liðið tapaði 1-0 gegn Wigan Athletic á útivelli. Þetta er fyrsti sigur Wigan gegn Liverpool frá upphafi.

Kolumbíski framherjinn Hugo Rodallega skoraði eina markið á 35.mínútu en þetta var fyrsta mark hans í langan tíma.

Markið kom eftir að Dirk Kuyt átti lélega sendingu, Emmerson Boyce komst inn á milli og sendi fyrir á Rodallega sem afgreiddi boltann í netið.

Charles N'Zogbia fékk einnig fínt færi til að bæta við öðru marki fyrir Wigan í síðari háfleik en Pepe Reina náði að verja frá honum.

Fernando Torres fékk bestu færi Liverpool í leiknum en hann átti stangarskot í fyrri hálfleiknum og skaut framhjá úr dauðafæri í þeim síðari. Leikmenn Liverpool virkuðu pirraðir í kvöld og Torres og fjórir aðrir leikmenn fengu að líta gula spjaldið í leiknum.

Með sigrinum komst Wigan lengra burt frá fallsvæðinu en liðið er núna í fjórtánda sæti með 28 stig.

Liverpool er hins vegar í sjötta sæti, stigi á eftir bæði Tottenham og Manchester City. Tottenham á einn leik til góða og City tvo. Aston Villa er þremur stigum á eftir Liverpool í sjöunda sæti en Villa á þrjá leiki til góða.
Slapp
banner
banner