Heimild: BBC
Rafael Benitez, stjóri Liverpool, var ósáttur við spilamennsku sinna manna í 1-0 tapinu gegn Wigan í kvöld.
Liverpool er eftir tapið í sjötta sæti og möguleiki liðsins á að ná Meistaradeildarsæti minnkuðu talsvert í kvöld enda eiga liðin í næstu sætum öll leiki til góða.
,,Við lékum ekki vel, sérstaklega í fyrri hálfleiknum," sagði Benitez eftir leik.
,,Við sýndum ekki gott viðhorf, við lögðum hart að okkur eftir leikhlé en vorum ekki nægilega klárir."
,,Það voru of margir hlutir í ólagi. Við erum ekki ánægðir, við verðum að sýna meiri karakter ef við viljum vera í topp fjórum."




