Valencia 0 - 0 Racing Santander
Rautt spjald: David Navarro ('88) (Valencia)
Rautt spjald: David Navarro ('88) (Valencia)
Einn leikur fór fram í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en Valencia og Racing Santander gerðu markalaust jafntefli.
Valencia er eftir leikinn sem fyrr í þriðja sæti deildarinnar, fjórum stiggum á undan bæði Mallorca og Sevilla.
David Villa komst næst því að skora fyrir Valencia þegar að hann átti stangarskot og þá bjargaði Migeul Angel Moya, markvörður heimamanna, tvívegis frá hinum unga Sergio Canales.
David Navarro, varnarmaður Valencia, fékk að líta rauða spjaldið undir lokin og því verður hann í leikbanni gegn Barcelona um næstu helgi.


