Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. mars 2010 05:55
Magnús Már Einarsson
Leikur dagsins hér heima - Breiðablik-HK í Lengjubikar
Það er oft heitt í kolunum þegar að Breiðablik og HK eigast við.
Það er oft heitt í kolunum þegar að Breiðablik og HK eigast við.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Einn leikur er á dagskrá hér á landi í kvöld en nágrannafélögin Breiðablik og HK mætast í Lengjubikar karla í Kórnum klukkan 18:00.

Það er alltaf hart barist þegar að þessi lið mætast en gengi þeirra í Lengjubikarnum hefur verið ólíkt hingað til.

Blikar eru með þrjú stig eftir jafnmarga leiki en HK er aftur á móti með eitt stig eftir tvo leiki.

Lengjubikar karla - Riðill 3:
18:00 Breiðablik - HK (Kórinn)

Veistu um æfingaleiki framundan?
Auk ofangreindra leikja gæti verið um einhverja æfingaleiki að ræða sem við vitum ekki um. Við hvetjum fólk til að senda okkur ábendingar um æfingaleiki sem framundan eru og við munum koma þeim á framfæri morgun þess dags sem leikurinn fer fram. Sendið slíkar ábendingar á [email protected].
Slapp
banner