Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. mars 2010 09:51
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sky 
Martinez: Þetta er dagur til þess að vera mjög stoltur af Wigan
Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Wigan Athletic var að vonum ánægður með 1-0 sigur liðsins á Liverpool í gær. Það var Hugo Rodallega sem skoraði eina mark leiksins.

,,Í kvöld (gærkvöld) var allt til staðar til þess að vinna topp fjögur lið. Karakter, ábyrgð, vilji og rétti andinn," sagði Martinez.

,,Það var mjög ánægjulegt en í þokkabót skoruðum við virkilega gott mark úr góðu spili gegn virkielga erfiðu liði."

,,Þeir eru virkilega hættulegir með Steven Gerrard, Fernando Torres, Dirk Kuyt og Yossi Benayoun. Stuðningsmennirnir eru stoltir af því að hafa haldið þeim í skefjum. Þetta er dagur til þess að vera mjög, mjög stoltur af Wigan."

,,Núna þurfum við bara að halda áfram á þessari braut þar til í lok leiktíðarinnar."

Slapp
banner