Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. mars 2010 15:27
Davíð Örn Atlason
Heimild: Soccerway 
Ronaldinho: Ekkert er ómögulegt
Ronaldinho, leikmaður AC Milan hefur varað Manchester United við fyrir leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á morgun og segir ekkert vera ómögulegt.

United hefur 3-2 forystu eftir fyrri leik liðanna á Ítalíu og það verður erfitt fyrir Milan að mæta á Old Trafford.

,,Þetta verður mjög erfiður leikur, en ekkert er ómögulegt," sagði Ronaldinho.

,,Ég held að þetta eigi eftir að vera mjög fallegur leikur."

,,Við þurfum jákvæð úrslit svo að við ætlum að spila til sigurs. Þeir spila heima að hætti þeirra af því að stjóri þeirra lætur þá alltaf spila þannig svo að það stefnir allt í frábæran leik."

Slapp
banner