Heimild: Sky
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal segir markið sem Sol Campbell skoraði í 2-1 tapi Arsenal gegn Porto í fyrri leik liðanna í Meistaradeild Evrópu sé gríðarlega mikilvægt.
Liðin mætast á ný í kvöld á Emirates leikvanginum og þetta útivallarmark Campbell gæti skipt sköpum.
,,Þegar þú tapar 1-0 á útivelli þá verður hinn leikurinn alltaf erfirður því þá þarftu að skora tvö eða þrjú mörk til þess að komast áfram," sagði Wenger.
,,Þetta er samt öðruvísi í þetta skipti - ef að við skorum eitt mark og höldum hreinu þá komumst við áfram."
,,Ég hef ekki trú á því að það verði eitthvað vanmat í gangi."
,,Við vitum að þetta verður snúinn leikur, en við höfum trú á því að við getum þetta. Við erum fullir sjálfstrausts, við erum í góðri stöðu, svo kýlum á þetta."

