Heimild: Sky
Manuel Almunia, markvörður Arsenal viðurkennir að liðið eigi eftir að sakna fyrirliðans Cesc Fabregas í leiknum gegn Porto í kvöld.
Fabregas getur ekki leikið í þessum síðari leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, en fyrri leiknum luktaði með 2-1 sigri Porto í Portúgal.
Í fjarveru Fabregas þá mun Almunia bera fyrirliðabandið, en hann hefði viljað hafa Fabregas inni á vellinum.
,,Cesc er andinn í þessu liði - hann er fyrirliðinn okkar. Hann er frábær leikmaður og við söknum hans í hvert einasta skipti sem hann er ekki inni á vellinum," sagði Almunia.
,,En allir leikmennirnir eru sannfærðir um að við eigum eftir að komast áfram."





