Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. mars 2010 11:08
Sigurður Reynir Karlsson
Heimild: Soccernet 
Dusko Tosic farinn frá Portsmouth
Serbneski landsliðsmaðurinn Dusko Tosic hefur verið leystur undan samningi hjá Portsmouth. Hann kom frítt til þeirra frá Werder Bremen fyrir nokkrum vikum og stoppaði því stutt við á Englandi.

Tosic gat ekki spilað með Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni vegna nýrra reglna um lið í fjárhags vandræðum. Tosic náði því aðeins að vera einu sinni á bekknum gegn Southampton í enska bikarnum en hann kom ekki við sögu í þeim leik.

Paul Groves, þjálfari hjá Portsmouth, sagði að eina skynsamlega leiðin hafi verið að leysa Tosic undan samningi.

,,Það þjónaði engum tilgangi að Tosic yrði áfram hjá okkur. Það er leiðinlegt því að hann var búinn að leggja hart að sér og var farinn að aðlagast hér," sagði Groves.

,,Hann er því miður eitt af fórnarlömbum fjárhagsvandræða okkar."
Slapp
banner