Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. mars 2010 11:37
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Gallas mögulega frá keppni í mánuð í viðbót
William Gallas, varnarmaður Arsenal, gæti þurft að sætta sig við að vera frá keppni í mánuð í viðbót vegna meiðsla á kálfa.

Gallas hefur ekkert leikið með Arsenal síðan í 1-0 sigrinum gegn Liverpool á Emirates 10.febrúar síðastliðinn.

Þessi franski varnarmaður var byrjaður að æfa aftur en meiðslin tóku sig þá upp á nýjan leik.

,,Gallas hefur verið frá í mánuð og núna tóku kálfameiðslin sig upp að nýju," sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal.

,,Honum leið mjög vel á sunnudag en honum hefur farið aftur síðan þá. Við erum því miður á byrjunarreit með Gallas. Í byrjun voru þetta smávægileg meiðsli. Við vitum ekki hversu lengi hann verður frá en hann á til dæmis engan möguleika fyrir leikinn gegn Hull (um næstu helgi)."

,,Við vorum óþolinmóðir með hann, við pressuðum á hann og hann vildi komast af stað líka, það er kannski ástæðan fyrir því að þetta gerðist."

,,Það eru hins vegar engin augljós merki af hverju þetta kemur alltaf aftur. Hann finnur ekki fyrir neinu en þegar að hann fer að skokka rólega þá fer þetta aftur."

Slapp
banner
banner
banner