Heimild: BBC
Enska knattspyrnusambandið er að rannsaka hvernig upptaka af samtölum leikmanna og þjálfara liðsins lak út.
Samtöl leikmanna og þjálfara voru tekinn upp á Grove Hotel þar sem að landsliðið dvaldi í síðustu viku fyrir 3-1 sigurinn á Egyptum.
Búið er að bjóða enskum fjölmiðlum að kaupa upptökurnar en ekki er vitað hvert tók samtölin upp eða hvernig það var gert.
Enska knattspyrnusambandið hefur skrifað bréf til allra fjölmiðla og sagt að ef að þeir kaupi upptökurnar og birti þær þá sé verið að brjóta lög.

