Heimild: Sky
Wayne Rooney, framherji Manchester United, æfði með liðinu í dag fyrir leikinn gegn AC Milan í Meistaradeildinni annað kvöld.
Rooney var ekki með United í 1-0 sigrinum á Wolves um helgina vegna hnémeiðsla en hann er núna byrjaður að æfa að nýju.
Rooney hefur skorað alls 28 mörk í vetur og því eru það góð tíðindi fyrir United ef að hann snýr aftur í liðið á morgun.
Ryan Giggs æfði einnig með United í gær en hann hefur verið frá keppni síðan að hann handarbrotnaði gegn Aston Villa.
Giggs æfði aftur á móti einn í morgun og ljóst er að hann spilar ekki á morgun líkt og Michael Carrick sem verður í leikbanni.




