Heimild: Heimasíða HK
Almir Cosic hefur ákveðið að hætta við að hætta og hann hefur hafið æfingar að nýju með HK en þetta kemur fram á vefsíðu félagsins.
,,Það er fagnaðarefni að fá Almir aftur í okkar hóp. Hann er hörkuduglegur leikmaður og með mikla reynslu sem nýtist vel okkar unga liði," sagði Tómas Ingi Tómasson þjálfari HK á vef félagsins.
Þessi 33 ára gamli miðjumaður hafði fyrr í vetur ákveðið að leggja skóna á hilluna en hann hefur núna hætt við þá ákvörðun.
Almir kom hingað til lands árið 2005 og gekk til liðs við Leikni Fáskrúðsfirði en koma hans vakti þónokkra athygli. Almir hafði leikið með bosníska félaginu FC Zeljeznicar í Evrópukeppni og vakið athygli en Newcastle sýndi honum meðal annars áhuga árið 2002.
Almir lék í tvö ár með Leikni áður en hann gekk til liðs við HK árið 2007. Síðastliðið sumar skoraði hann eitt mark í nítján leikjum í fyrstu deildinni með HK.
HK mætir Breiðablik í Lengjubikarnum í Kórnum klukkan 18:00 í kvöld og Almir kemur inn í leikmannahópinn þar.




