Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. mars 2010 14:16
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Paul Scholes: Markið á San Siro það versta á ferlinum
Paul Scholes, miðjumaður AC Milan, segir að markið sem að hann skoraði gegn AC Milan í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar hafi verið það versta á ferlinum.

United sigraði leikinn 3-2 en Scholes jafnaði 1-1 í fyrri hálfleik. Hann skoraði þá eftir fyrirgjöf frá Antonio Valencia en Scholes hitti ekki boltann með hægri fæti og því fór hann af vinstri fætinum og í netið.

,,Þetta mark var líklega það versta sem ég hef skorað. Það er auðvelt að viðurkenna það," sagði Scholes.

,,Ég ætlaði að hitta boltann með hægri fæti en hann fór í þann vinstri. Mark er mark og ég tek þessu fagnandi."

,,Við þurfum á þessu marki að halda því eftir fyrstu 20 mínúturnar hefðum við getað verið þremur eða fjórum mörkum undir. Eftir markið leit alltaf út fyrir að þetta yrði okkar leikur."

Slapp
banner
banner
banner