Heimild: Goal
Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid, segir að liðið muni ekki eiga í vandræðum með að komast áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Real Madrid er 1-0 undir gegn Lyon fyrir síðari leikinn á Santiago Bernabeu á morgun en Ramos hefur trú á að Madridingar vinni örugglega á morgun.
,,Við munum vinna 3-0 og stuðningsmennirnir munu standa á bakvið liðið enn og aftur líkt og gegn Sevilla," sagði Ramos.
,,Við munum upplifa annað magnað kvöld á Bernabeu."
Ramos hefur verið að glíma við meiðsli á tá en hann verður væntanlega með í leiknum á morgun.


