Heimild: BBC
Wes Brown, varnarmaður Manchester United og enska landsliðsins, verður frá keppni næstu fjórar til sex vikurnar vegna meiðsla.
Þessi þrítugi leikmaður meiddist á fæti eftir tæklingu frá Matt Jarvis í leik gegn Wolves um helgina.
Brown þurfti að fara í spelku heim til Manchester og hann fór síðan í rannsóknir á sunnudag.
Nú er komið í ljós að Brown verður frá í fjórar til sex vikur en það þýðir að hann ætti að verða klár í slaginn fyrir HM í sumar.




