Heimild: Sky
Wayne Rooney, framherji Manchester United, verður með liðinu gegn AC Milan í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld.
Rooney fann fyrir hnémeiðslum í landsleik gegn Egyptum í síðustu viku og missti af þeim sökum af leik Manchester United og Wolves um helgina.
Stuðningsmenn Manchester United fengu síðan þær gleðifréttir í dag að Rooney verður með á morgun en þessi 24 ára gamli leikmaður hefur verið í miklu stuði og skorað 28 mörk á tímabilinu.
,,Hann er klár, ég get glaður tilkynnt það að hann er heill heilsu," sagði Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United á fréttamannafundi í dag.
,,Bati hans hefur verið mjög hraður frá því á laugardagsmorgun. Hann var mjög tæpur fyrir leikinn en hann er í lagi."



