Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. mars 2010 17:01
Magnús Már Einarsson
Martin Pedersen skiptir ekki strax í Val - Klárar að taka út leikbann
Missir af leikjum í Lengjubikarnum
Gunnlaugur Jónsson þjálfari Vals og Martin Pedersen.
Gunnlaugur Jónsson þjálfari Vals og Martin Pedersen.
Mynd: Valur
Danski varnarmaðurinn Martin Pedersen mun ekki ganga til liðs við Val á láni frá Vejle fyrr en eftir 1. apríl þrátt fyrir að samkomulag hafi náðst um síðustu helgi.

Pedersen fékk að líta rauða spjaldið eftir leik gegn FC Vestsjælland í nóvember siðastliðnum.

Í kjölfarið var hann dæmdur í þriggja leikja bann en þar sem að vetrarfrí hefur verið í gangi í dönsku deildinni þá á hann ennþá eftir að taka út bannið.

Ef að Pedersen myndi skipta yfir í Val núna þá myndi hann þurfa að byrja Íslandsmótið í þriggja leikja banni.

Til að koma í veg fyrir það þá hafa Valsmenn ákveðið að fá ekki félagaskipti fyrir Pedersen fyrr en 1. apríl og þar með mun hann taka bannið út í leikjum Vejle gegn Fredericia, Næstved og Thisted.

Þar sem að Pedersen fær ekki félagaskipti strax þá mun hann missa af leikjum Vals í Lengjubikarnum gegn Fram, Selfossi, Leikni og KA en fyrsti leikur hans með liðinu verður gegn Víkingi þann 9. apríl.
Slapp
banner
banner