Heimild: Bold.dk
Hrósar einnig Ólafi Inga Skúlasyni
Michael Hemmingsen, þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins SönderjyskE, hefur mikið álit á miðverðinum Sölva Geir Ottesen sem hefur þótt spila frábærlega með liðinu undanfarin tvö ár.
Sölvi var hetja SönderjyskE þegar hann skoraði eina mark liðsins í 1-1 jafnteflisleik gegn Bröndby á sunndaginn í fyrsta leik liðanna eftir vetrarfrí í dönsku úrvalsdeildinni.
Hann hefur verið undir smásjánni hjá liðum á Bretlandseyjum undanfarið ár og segist Hemmingsen í samtali við danska fjölmiðla hafa fulla trú á því að Sölvi muni spjara sig í ensku úrvalsdeildinni skuli leið íslenska landsliðsmannsins liggja þangað í framtíðinni.
,,Hann hefur verið óheppinn með meiðsli en ef þau eru að baki þá getur hann náð langt,” sagði Hemmingsen í samtali við Bold.dk.
Hefur mikla trú á Ólafi Inga
Ólafur Ingi Skúlason lék sinn fyrst leik fyrir SönderjyskE gegn Bröndby eftir að hafa gengið til liðs við félagið frá sænska liðinu Helsingborg undir lok síðasta árs. Hann fær góða dóma fyrir frammistöðuna í dönsku fjölmiðlum og er Hemmingsen sama sinnis.
Hann lætur í veðri vaka að Ólafur Ingi sé leikmaður sem gæti orðið liðinu jafnmikilvægur og Sölvi.
,,Við erum mjög ánægðir með byrjun hans hjá SönderjyskE og ef maður skoðar frammistöðu hans gegn Bröndby, þá er augljóst að hann er fengur fyrir okkar lið."




