Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. mars 2010 21:37
Magnús Már Einarsson
Meistaradeildin: Bendtner með þrennu í stórsigri Arsenal
Arsenal 5 - 0 Porto (Samanlagt 6-2)
1-0 Nicklas Bendtner ('10)
2-0 Nicklas Bendtner ('25)
3-0 Samir Nasri ('63)
4-0 Emmanuel Eboue ('66)
5-0 Nicklas Bendtner ('90, víti)

Arsenal tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar með stæl í kvöld en liðið sigraði þá Porto 5-0 á heimavelli og samanlagt 6-2.

Danski framherjinn Nicklas Bendtner skoraði þrennu í leiknum í kvöld eftir að hafa þurft að þola mikla gagnrýni fyrir að misnota mörg góð færi gegn Burnley um síðustu helgi.

Bendtner skoraði fyrsta markið strax á tíundu mínútu eftir undirbúning Andrey Arshavin.

Arshavin kom aftur við sögu korteri síðar þegar að hann lék upp að endamörkum og sendi fyrir á Bendtner sem skoraði í autt markið.

Samir Nasri komst á blað á 63.mínútu en hann lék þá frábærlega framhjá þremur varnarmönnum áður en að hann skoraði með skoti í stöng og inn úr þröngu færi.

Eftir það mark var ekki spurning um hvort liðið væri á leiðinni áfram og þremur mínútum síðar skoraði Emmanuel Eboue fjórða markið. Eftir hornspyrnu Porto fór Arsenal í skyndisókn sem endaði á því að Arshavin renndi boltanum inn fyrir á varamanninn Emmanuel Eboue sem lék á Helton í markinu og skoraði.

Á lokamínútunni náði Bendtner að innsigla þrennuna en hann skoraði þá úr vítaspyrnu og lokatölur 5-0 fyrir Arsenal sem er þar með komið í 8-liða úrslitin.
Slapp
banner
banner