Sunderland með sinn fyrsta sigur á árinu
Tveir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Sunderland vann sinn fyrsta leik á þessu ári og fyrsta sigur í 14 leikjum þegar að liðið sigraði Bolton örugglega 4-0 á heimavelli.
Fraizer Campbell skorað fyrsta markið eftir einungis 40 sekúndur og Darren Bent skoraði síðan þrennu í síðari hálfleik. Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn í vörn Bolton.
Hermann Hreiðarsson lék einnig allan leikinn í vörn Portsmouth sem tapaði 2-1 gegn Birmingham. Cameron Jerome skoraði bæði mörk Birmingham í þeim leik.
Sunderland 4 - 0 Bolton Wanderers
1-0 F. Campbell ('1)
2-0 D. Bent ('64)
3-0 D. Bent ('74, víti)
4-0 D. Bent ('88)
Portsmouth 1 - 2 Birmingham City
0-1 C. Jerome ('16)
0-2 C. Jerome ('42)
1-2 N. Kanu ('90)




