Cicinho leikmaður Sao Paulo segir að honum hafi liðið eins og fanga á þeim tíma sem hann var hjá Real Madrid.
Hann segir móralinn hafa verið lélegan í kringum félagið og hann sjái ekki eftir því að hafa farið.
,,Þegar ég fór frá Real Madrid til AS Roma þá leið mér eins og ég væri laus, ég var fangi þar. Umgjörðin hjá Real var mjög slæm," sagði Cicinho.
,,Raul var uppljóstari fjölmiðla, hann sagði þeim það sem gerðist í klefanum. Eftir að Roberto Carlos og Ronaldo fóru, þá misstu þeir mikið."
,,Sjáðu hvernig þeir eru að éta Kaka í sig, einn sá besti í heimi."

