Það er fátt annað talað um á Englandi þessa dagana en leik Manchester United og AC Milan sem fram fer í kvöld.
Mikil eftirvænting er fyrir leiknum en David Beckham er að koma í fyrsta sinn til baka eftir að hann fór frá Old Trafford.
Alls óvíst er hvort Beckham verði í byrjunarliðinu en United vann fyrri leikinn 3-2 í Milan og gleðitíðindi fyrir Manchester United eru að Wayne Rooney er heill.
Í hinum leiknum mætast Real Madrid og Lyon en Frakkarnir unnu fyrri leikinn 1-0 á heimavelli.
Leikir kvöldsins:
19:45 Manchester United - AC Milan
19:45 Real Madrid - Lyon


