Fraizer Campbell, framherji Sunderland, var hæstánægður eftir að hann kom liðinu í 1-0 eftir aðeins 40 sekúndur í leik gegn Bolton í gær. Campbell hljóp út að hliðarlínu og sparkaði í auglýsingaskilti en það vildi ekki betur til en svo að fóturinn festist í auglýsingaskiltinu. Campbell náði þó að losa sig á nokkrum sekúndum eins og sjá má hér að neðan.

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf.
All rights reserved.


