Heimild: Sporting Life
Federico Macheda, framherji Manchester United, fer að verða klár í slaginn á nýjan leik eftir meiðsli.
Macheda hefur einungis leikið fimm leiki á tímabilinu en hann hefur verið meiddur á kálfa að undanförnu og síðasti leikur hans var gegn Tottenham í desember.
Eftir meiðsli Michael Owen þá eru góð tíðindi fyrir United að Macheda sé að koma til baka þar sem að í augnablikinu eru Wayne Rooney, Dimitar Berbatov og Mame Biram Diouf einu framherjarnir sem eru heilir hjá liðinu.
,,Macheda byrjaði að æfa rólega í þessari viku. Hann hefur átt við langtíma meiðsli að stríða sem eru vonbrigði fyrir okkur því að hann hefur svo mikla hæfileika," sagði Ferguson.
,,Hann ætti hins vegar að snúa aftur í boltann innan tveggja vikna."



